Fotbolti.net
22.08.26 - 16:58
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Vestri upp fyrir Leikni

Johannes Selvén skoraði eftir 39 sekúndur

Johannes Selvén skoraði eftir 39 sekúndur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Vestri 2 - 0 Leiknir R.
1-0 Johannes Selvén ('1 )
2-0 Guðjón Pétur Stefánsson ('38 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn
Vestri komst upp fyrir Leikni í Lengjudeild karla með 2-0 sigri á Breiðholtsliðinu á Kerecis-vellinum á Ísafirði í dag.

Það tók heimamenn aðeins 39 sekúndur að komast yfir. Slæm sending úr vörn Leiknis rataði á Ibrahima Balde sem framlengdi boltann á Johannes Selvén og hann skoraði.

Draumabyrjun hjá Vestra en eftir markið var nokkuð jafnræði með liðunum og bæði fengu sín færi. Selvén gat tvöfaldað forystuna eftir að hafa leikið á Ólaf Íshólm Ólafsson í marki Leiknis en tókst ekki að koma boltanum á markið.

Leiknismenn komu boltanum í netið eftir hornspyrnu en markið var dæmt af vegna brots í teignum. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis, var afar ósáttur við þá ákvörðun.

Vont varð síðan verra fyrir gestina undir lok fyrri hálfleiks. Balde átti skot í innanverða stöngina og þaðan fór boltinn í Guðjón Pétur Stefánsson og í eigið net.

Lítið var um dauðafæri í síðari hálfleiknum. Vestri var þó líklegra til að bæta við en heimamönnum tókst ekki að skora þriðja markið.

Vestramenn sigldu 2-0 sigrinum í höfn og héldu hreinu. Liðið fer upp fyrir Leikni og í 7. sætið með 27 stig en Leiknir er í því áttunda með 25 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding19+2939
2Þróttur R.20+1837
3HK20+1235
4Fylkir19+734
5Njarðvík19+632
6Grótta19-127
7Leiknir R.19+225
8ÍR20-525
9Vestri19-1124
10Grindavík19-621
11Völsungur19-1220
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.