Fotbolti.net
22.08.26 - 10:15
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool spurðist fyrir um Endrick - Chelsea á von á tilboði frá Villa

Liverpool spurðist fyrir um Endrick - Chelsea á von á tilboði frá Villa
Canon

Mynd: EPA

Powerade
Enska félagið Liverpool er að leita að styrkingu í sóknarlínuna, Chelsea ætlar að selja Nicolas Jackson og Arsenal er þá að skoða Victor Osimhen. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Liverpool hefur sett sig í samband við Real Madrid vegna brasilíska framherjans Endrick (20) eftir að Brighton hafnaði öðru tilboði félagsins í gambíska vængmanninn Yankuba Minteh (22). (Times)

Chelsea býst við tilboði frá Aston Villa í senegalska framherjann Nicolas Jackson (25), en hann er metinn á 65 milljónir punda. (Telegraph)

Arsenal hefur áfram áhuga á nígeríska framherjanum Victor Osimhen (27) hjá Galatasaray, en aðeins ef hann lækkar launakröfur sínar. (Foot Mercato)

Newcastle og RB Leipzig hafa sett sig í samband við AC Milan vegna franska framherjans Christopher Nkunku (28). (Fabrizio Romano)

Atletico Madríd er tilbúið að selja argentínska framherjann Julian Alvarez (26) til Arsenal. Alvarez hafnaði hins vegar möguleikanum enda vill hann aðeins ganga til liðs við Barcelona. (Mundo Deportivo)

Sunderland hefur náð samkomulagi um kaup á Kongómanninum Jules Ahoka (20) frá Antwerp fyrir átta milljónir punda. (Sky Sports)

Bournemouth er að ganga frá samkomulagi við Juventus um ítalska markvörðinn Michele Di Gregorio (29). Hann kemur á láni með kaupákvæði. (Gianluca Di Marzio)

Kongómaðurinn Willy Kambwala (21) er á leið frá Villarreal til Como. Uppeldisfélag hans, Manchester United, fær væna summu vegna endursöluákvæðis í samningi hans. (Mirror)

Daniel Munoz (30), hægri bakvörður Crystal Palace og kólumbíska landsliðsins, hefur verið orðaður við Tottenham en er efins um að ganga til liðs við félagið. (Football Insider)
Aston Villa gæti keypt Jackson

Aston Villa gæti keypt Jackson

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.