Magnús Ottesen skoraði fyrir Fylki: Óheppinn í sumar að lenda í meiðslum


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Góðir í dag, byrjuðum sterkt, pressuðum Grindavík sem gekk vel. Gott flot á boltanum hjá okkur og heilt yfir góður leikur" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, eftir 6-1 sigur á Grindavík á heimavelli.
Miðað við síðasta leik var frammistaðan miklu betri?
„Þetta var miklu betri frammistaða, svona heilt yfir. Sérstaklega fyrri hálfleikurinn á móti Þrótti voru vonbrigði, það er alltaf næsti leikur. Við svöruðum því í dag."
„Pressan var góð og við vorum svolítið á móti Þrótti að selja okkur í pressuna, við vorum ekki að gera það í dag. Svo var betra flæði í dag á boltanum og við nýttum vængina vel. Svo vorum við sterkir í föstum leikatriðum."
Fylkir mun að minnsta kosti enda tímabilið í umsspilssæti.
„Það er bara fínt, en við eigum tvo leiki eftir og næst bara erfiðan leik á móti Gróttu á heimavelli, sem við þurfum að undirbúa vel. Það er það eina sem við hugsum um, við klárum þessa leiki og svo sjáum til hvar við stöndum."
Gummi Tyrfings fékk gult spjald fyrir að koma of snemma inn á völlinn eftir að hafa þurft að fara út af vegna aðhlynningar.
„Já, það var mér að kenna. Ég ýtti honum of fljótt inn á völlinn, ég hélt að hann mátti fara inn á, á ákveðnum tímapunkti. Ég ræð þessu ekki, Pétur (dómarinn) ræðir þessu og við fórum yfir þetta. Þannig að þetta var mér að kenna, Gummi er í leikbanni í næsta leik."
„Ég ber ábyrgð á þessu. Ég verð að gera það."
Þeir ungu, Magnús Daði Ottesen skoraði í dag. Jóel Baldursson spilaði sínar fyrstu mínúturnar fyrir Fylki.
„Þeir hafa staðið sig vel á æfingasvæðinu. Maggi var óheppin í sumar að lenda í meiðslum, hann væri sennilega búin að spila meira. Það er bara jákvætt fyrir okkur að þeir komu inn og stóðu sig vel."
