Fotbolti.net
22.08.26 - 15:27
Brynjar Ingi Erluson

Myndband: Kom flottasta mark ársins í ensku B-deildinni?

Myndband: Kom flottasta mark ársins í ensku B-deildinni?
Canon

Mynd: Bristol City

Dominic Ballard skoraði eitt glæsilegasta mark ársins þegar Bristol City og Birmingham gerðu 2-2 jafntefli í 2. umferð ensku B-deildarinnar í dag.
Ballard skoraði stórkostlegt mark með hælspyrnu eftir fyrirgjöf Rio Cardines. Markið var svo glæsilegt að það gæti hæglega endað í umræðunni um Puskas-verðlaunin.

Hann var staddur inni á miðjum teignum með bakið í markið þegar hann spyrnti boltanum á lofti með hælnum og sendi hann með fallegum snúningi upp í vinstra hornið.

Algjörlega sturlað mark sem má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.