Fotbolti.net
22.08.26 - 11:14
Brynjar Ingi Erluson

Rashford fær níuna

Rashford fær níuna
Canon

Mynd: Man Utd

Manchester United hefur staðfest að Marcus Rashford klæðist treyju númer níu á komandi tímabili en ekki númer fjórtán, líkt og Fabrizio Romano greindi frá fyrr í mánuðinum.
Romano sagði á dögunum að Rashford myndi klæðast treyju númer fjórtán yrði hann áfram hjá United og að Benjamin Sesko fengi níuna.

Rashford, sem sneri aftur til United í sumar eftir lánsdvöl hjá Barcelona, var hins vegar í treyju númer níu í æfingaleiknum gegn AC Milan. Nú hefur verið staðfest að hann verður í níunni á komandi tímabili.

Sesko heldur treyju númer þrjátíu og hinn ungi og efnilegi JJ Gabriel hefur fengið númer 77.

Andrey Santos og Youri Tielemans gengu til liðs við United í sumar. Santos verður í treyju númer sautján og Tielemans fær átján.

Kamerúnski miðjumaðurinn Carlos Baleba er þá á leið til félagsins frá Brighton. Hann var í treyju númer sautján á síðustu leiktíð en lék áður í númer tuttugu. Það númer er laust hjá United og kemur því til greina, líkt og númer fjórtán.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.