22.08.26 - 14:50
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu Angulo opna markareikninginn með glæsibrag

Angulo skoraði frábært aukaspyrnumark

Mynd: Sunderland

Angulo skoraði frábært aukaspyrnumark

Mynd: Sunderland
Ekvadorski vængmaðurinn Nilson Angulo opnaði markareikning sinn fyrir Sunderland með stórkostlegu aukaspyrnumarki í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Angulo kom til Sunderland í byrjun árs og lék átta deildarleiki á síðustu leiktíð án þess að skora.
Hann mætti ákveðinn til leiks í dag. Ipswich komst yfir með marki Emersonn á 24. mínútu en Angulo jafnaði fimmtán mínútum síðar.
Sunderland fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateiginn sem Angulo skrúfaði yfir vegginn, í slána og inn.
Stórglæsilegt mark og Sunderland komið aftur inn í leikinn.
Everton er þá 1-0 yfir gegn Crystal Palace eftir mark Kiernan Dewsbury-Hall en staðan er markalaus hjá Nottingham Forest og Leeds.
Sjáðu markið hjá Angulo