22.08.26 - 11:55
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Nýliðarnir komnir yfir gegn Man Utd

Úr leiknum í dag

Mynd: EPA

Úr leiknum í dag

Mynd: EPA
Það eru heldur betur óvænt tíðindi frá MKM-leikvanginum í Hull, en heimamenn eru komnir yfir gegn Manchester United eftir aðeins sautján mínútur.
Nýliðarnir unnu sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í gegnum umspilið og flestir spá þeim falli. Þeir ætla sér hins vegar að þagga niður í gagnrýnisröddunum.
Bryan Mbeumo fékk ágætt færi snemma leiks en eftir það ógnuðu heimamenn. Senne Lammens varði fyrst skalla frá Oli McBurnie og síðan skot Ryan Giles aftur fyrir endamörk.
Markið kom upp úr hornspyrnunni. Boltinn fór inn á nærsvæðið og í gegnum allan pakkann á McBurnie sem náði skoti að marki. Lammens varði frábærlega í stöngina en frákastið féll fyrir Semi Ajayi sem skoraði af öryggi.
Frábær byrjun hjá nýliðunum en markið má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér