22.08.26 - 12:18
Brynjar Ingi Erluson
Skoraði í frumrauninni og Man Utd í miklu veseni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester United er tveimur mörkum undir gegn nýliðum Hull í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þegar flautað hefur verið til hálfleiks á MKM-leikvanginum.
Nýliðarnir hafa verið sprækir í fyrsta leik sínum í úrvalsdeildinni. Semi Ajayi kom þeim yfir á 17. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu, rétt eftir að Senne Lammens hafði varið skot Oli McBurnie í stöngina.
Hull bætti öðru marki við tuttugu mínútum síðar. Regan Slater sendi aukaspyrnu á fjærstöngina þar sem Senegalinn Nobel Mendy reis hæst og skallaði boltann í netið í sínum fyrsta leik sínum fyrir félagið.
United-menn hafa verið í miklu basli og líklegt er að Michael Carrick geri breytingar í hálfleik enda með mörg vopn á bekknum sem geta haft áhrif á leikinn.

Hull City [2]-0 Manchester United - Nobel Mendy 38'
by
u/xggq in
soccer