Fotbolti.net
22.08.26 - 16:53
Brynjar Ingi Erluson

Tap hjá Sædísi og Söndru

Sædís Rún byrjaði sinn fyrsta deildarleik með Köln

Sædís Rún byrjaði sinn fyrsta deildarleik með Köln

Canon

Mynd: Köln

Kvennaboltinn
Köln, með þær Sædísi Rún Heiðarsdóttur og Söndru Maríu Jessen, tapaði fyrir Eintracht Frankfurt, 2-0, í fyrstu umferð þýsku deildarinnar í dag.
Sædís kom til Köln frá Vålerenga í sumar en Sandra lék með þýska liðinu á síðustu leiktíð og raðaði þá inn mörkum.

Sædís var í byrjunarliði Kölnar en Sandra kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik.

Köln mætir Hoffenheim í næstu umferð á laugardag.

María Catharina Gros Ólafsdóttir byrjaði hjá Djurgården sem gerði 2-2 jafntefli við Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni. Heiða Ragney Viðarsdóttir var þá í byrjunarliði Eskilstuna sem tapaði 1-0 fyrir Växjö.

Elísa Lana Sigurjónsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Linda Líf Boama byrjuðu allar hjá Kristianstad í 1-1 jafntefli gegn Rosengård. Nik Chamberlain, fyrrum þjálfari Breiðabliks og Þróttar, stýrir Kristianstad.

Eskilstuna er í 5. sæti með 23 stig, Kristianstad í því sjötta með 22 stig og Djurgården í 10. sæti með 15 stig.

Eyrún Embla Hjartardóttir byrjaði hjá varaliði Häcken sem vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu með dramatískum 3-2 sigri á Sandviken.

Häcken er áfram á botninum með fjögur stig, tveimur stigum á eftir Sandviken sem er í næstneðsta sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.