Fotbolti.net
22.08.26 - 16:41
Sigurjón Árni Torfason

„Töpum ekki leik ef ég ver eins og í dag“

Auglýsing
Heimamenn héldu hreinu í Kórnum

Heimamenn héldu hreinu í Kórnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Fótbolti.net spjallaði við Ólaf Örn Ásgeirsson, markvörð heimamanna í HK, eftir 3-0 sigur gegn Þrótti í Kórnum í dag. 

Hvernig eru fyrstu viðbrgöð?
„Geggjuð og virikilega gott, við uppskárum eins og við sáðum í dag."

Fannst þér þetta vera 3-0 leikur?
„Þeir voru ekki að skapa sér mikið fyrr en í lokin þegar við vorum þreyttir og lágum aðeins tilbaka. Annars sannfrærandi þannig að ég bara 3-0 leikur."

Ólafur var valinn maður leiksins er það ekki bara eitthvað til að auka gleðina? 

„Jú geðveik tilfinning en ég gæti þetta ekki án varnarmanna og liðsféleagana. Þetta kom loksins, stórbrotnar vörslur hafa verið af skornum skammti í sumar hjá manni en nú er búið að kveikja á þessu. Ef ég ver svona áfram þá töpum við ekki leik".

Það er atvik í lokin þar sem Hlynur Þórhallsson, leikmaður Þróttar, fær rautt fyrir að rífa kjaft við þig, hvað gerist þar?

„Já hann sparkar aðeins í mig þegar ég fer niður og ég ýki það kannski aðeins en rautt var það".

Næsti leikur er í Grindavík hvernig leggst hann í menn? „Bara erfiður útileikur á grasi í Grindavík, við þurfum að gera eins og hér í dag og þá hef ég engar áhyggjur. Þrír púnktar í hús."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.