Fotbolti.net
22.08.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vilja lána Mudryk til Strasbourg

Vilja lána Mudryk til Strasbourg
Canon

Mynd: EPA

Úkraínski kantmaðurinn Mykhaylo Mudryk má spila fótbolta eftir að fjögurra ára keppnisbanni hans var aflétt í kjölfar áfrýjunar til Alþjóðlega íþróttadómstólsins í Sviss.
Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk aflétt
TENGT EFNI

Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk aflétt

Mudryk er samningsbundinn Chelsea næstu fimm árin og hefur ekki tekið þátt í keppnisleik síðan í nóvember 2024, þegar hann var upprunalega dæmdur í bann eftir fall á lyfjaprófi.

Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að Mudryk verði lánaður út í sumar en Chelsea hafnaði á dögunum lánstilboði frá Leeds United í kantmanninn fljóta.

Mudryk vill spila í ensku úrvalsdeildinni en Romano segir að Chelsea vilji helst lána hann til systurfélagsins Strasbourg sem leikur í efstu deild franska boltans.

Chelsea hafnar tilboði Leeds í Mudryk
TENGT EFNI

Chelsea hafnar tilboði Leeds í Mudryk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.