Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. september 2021 15:30
Elvar Geir Magnússon
Messi setti gríðarlegar kröfur á öllum æfingum
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi setur gríðarlegar kröfur á alla í kringum sig og þolir ekki að tapa á æfingum. Þetta segir Ronald Koeman, stjóri Barcelona.

Messi yfirgaf Barcelona í sumar og samdi við Paris Saint-Germain.

Koeman hefur opinberað hvernig Messi lyfti öllum æfingum upp á næsta stig.

„Messi var auðvitað með góða leikmenn kringum sig en hann gerði ákveðinn gæfumun. Allir voru betri vegna hans. Þetta er ekki gagnrýni, þetta er staðreynd," segir Koeman.

„Það er gaman að vinna með honum á hverjum degi. Hann slakaði aldrei á þegar hann æfði. Hann vildi alltaf vinna allt."

Óhætt er að segja að Barcelona sakni Messi en spjótin beinast að Ronald Koeman eftir ósannfærandi byrjun á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner