22.09.26 - 17:18
Arnar Páll Matthíasson
„Ætlum að halda í boltann og pressa þær“

Þórdís Elva, leikmaður Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Flautað verður til leiks 16:00 á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórdís Elva, leikmaður Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Leikurinn leggst mjög vel í okkur og við erum klárar fyrir morgundaginn“, segir Þórdís Elva Ágústsdóttir, leikmaður Breiðabliks um Evrópuverkefnið sem er framundan.
Breiðablik mætir pólsku meisturunum Czarni Sosnowiec í 2. umferð Evrópubikarsins. Fyrri leikur liðanna fer fram á Eikarvellinum á morgun, klukkan 16:00.

Sjálfstraust í hópnum
„Það er mjög góð stemning í hópnum, allir ferskir og við erum klárar í þetta. Við erum búnar að sjá aðeins af þeim og erum undirbúnar fyrir það sem við þurfum að gera til að klára þetta“, segir Þórdís og var spurð út í hvernig hún sér leikinn spilast.
„Við ætlum að halda í boltann og gera það sem við erum búnar að gera vel, pressa þær og spila okkar bolta.“
Skemmtilegt uppbrot
Breiðablik hafa átt góðu gengi að fagna í Bestu deildinni í sumar og fagnar Þórdís því að spila Evrópuleiki.
„Það er gaman að brjóta þetta aðeins upp og fá þessa Evrópuleiki inn á milli og við viljum halda okkur inn í keppninni'' sagði Þórdís Elva.