22.09.26 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
Arteta á bara eftir að skrifa undir


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Mikel Arteta hefur gert samkomulag við Arsenal um nýjan endurbættan samning. Núverandi samningur Spánverjans rennur út í lok þessa tímabils en viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir í nokkra mánuði.
Samkvæmt frétt BBC fær Arteta mikla launahækkun frá núverandi samningi. Búast má við því að Arteta verði einn launahæsti stjóri heimsfótboltans
Samkvæmt frétt BBC fær Arteta mikla launahækkun frá núverandi samningi. Búast má við því að Arteta verði einn launahæsti stjóri heimsfótboltans
Frá því að Arteta var ráðinn til Arsenal í desember 2019 hefur hann bætt liðið mikið og það vann sinn fyrsta meistaratitil í 22 ár. Liðið er líklegast til að vinna titilinn aftur á þessu tímabili og er talið líklegast í baráttunni um sigur í Meistaradeildinni.
Arteta hefur reglulega sagt að samningamál sín væru ekkert vandamál, hann væri afar ánægður hjá félaginu og þakklátur fyrir að starfa með því fólki sem þar er.
Arteta hefur reglulega sagt að samningamál sín væru ekkert vandamál, hann væri afar ánægður hjá félaginu og þakklátur fyrir að starfa með því fólki sem þar er.
