22.09.26 - 14:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarki Steinn á hækjum og verður ekki með landsliðinu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðsmaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason meiddist í leik með liði sínu Südtirol í ítölsku B-deildinni um helgina. Hann fór af velli í hálfleik í útisigri Südtirol á Arezzo. Hann er í landsliðshópnum sem er kominn saman og undirbýr sig fyrir leiki í Þjóðadeildinni.
Bjarki Steinn, sem á að baki sjö A-landsleiki, er á hækjum og því verður að teljast ansi ólíklegt að hann geti tekið þátt í komandi landsleikjum.
Bjarki er 26 ára og hefur spilað sem hægri bakvörður í landsliðinu og var keyptur til Südtirol frá Venezia í sumar.
Uppfært 15:45: KSÍ hefur gefið út að Bjarki verði ekki með í komandi leikjum og ekki hafi verið tekið ákvörðun hvort leikmaður verði kallaður í hans stað.

Ef það þarf að gera breytingu á landsliðshópnum er líklegt að horft verði til Dags Dans Þórhallssonar, Alfons Sampsted eða Valgeirs Lunddal Friðrikssonar sem hafa spilað sömu stöðu í landsliðinu.
Kandídatar í hægri bakvarðarstöðuna í hópnum eru ásamt Bjarka Steini þeir Guðlaugur Victor Pálsson, Mikael Egill Ellertsson og Mikael Neville Anderson. Mikael Anderson hefur spilað sem hægri vængbakvörður í AGF og landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson sagði í síðustu viku að það væri möguleiki að hann gæti leyst bakvarðarstöðuna.
Landsleikirnir framundan
Þjóðadeild karla - C-deild, riðill 4
laugardagur 26. september
16:00 Ísland-Eistland (Laugardalsvöllur)
þriðjudagur 29. september
18:45 Lúxemborg-Ísland (Stade de Luxembourg)
laugardagur 3. október
16:00 Ísland-Búlgaría (Laugardalsvöllur)
þriðjudagur 6. október
18:45 Eistland-Ísland (Lilleküla Stadium)