22.09.26 - 16:17
Arnar Páll Matthíasson
„Ef fólk gæti klárað vinnu snemma og sýnt okkur stuðning væri það frábært“

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Flautað verður til leiks 16:00 á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ása verið slöpp og æfði ekki í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ef fólk getur klárað vinnu snemma og mætt og sýnt okkur stuðning væri það frábært.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum mjög spennt fyrir leiknum á morgun, svolítið öðruvísi undirbúningur fyrir Evrópuleiki og við erum klár í þetta'', segir Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks um Evrópuverkefnið sem er fram undan.
Breiðablik mætir pólsku meisturunum Czarni Sosnowiec í 2. umferð Evrópubikarsins. Fyrri leikur liðanna fer fram á Eikarvellinum á morgun, klukkan 16:00.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 0 Czarni
Staðan á hópnum góð fyrir einvígið
„Það er engin í meiðslum. (Hrafnhildur) Ása er búin að vera aðeins slöpp og æfði ekki í dag en fyrir utan það erum við með allan leikmannahópinn,“ segir Jeffs og var spurður út í andstæðinginn.
„Við erum búin að leikgreina þeirra leikstíl og búin að taka leikina sem þær hafa spilað í pólsku deildinni og líka í Evrópukeppni. Þetta er hörkulið og við þurfum að vera on it á morgun til að ná í góð úrslit.“
Hefur mikla trú á sínu liði
„Ég held það séu það mikil gæði í okkar liði að við getum klárlega gert góða hluti á morgun og unnið leikinn. Það verður lagt upp þannig að við sækjum og reynum að komast yfir í leiknum á morgun,“ segir Jeffs og telur það mikilvægt að byrja einvígið með góðum úrslitum á heimavelli.
„Þú vilt alltaf vinna heimaleikinn og það væri mjög gott að fara út með eitthvað forskot í seinni leikinn. Það verður lagt þannig upp á morgun að við sækjum og reynum að vinna leikinn. Þetta er mjög gott lið sem við erum að mæta og við þurfum að passa okkur, það eru margir góðir sóknarmenn í þeirra liði og við þurfum að spila góðan og þéttan varnarleik líka. Ef við gerum það þá held ég að það séu nógu mikil sóknargæði til að vinna leikinn á morgun.“
Eitthvað sem við stjórnum ekki
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og segir Jeffs að það gæti haft áhrif á mætinguna á völlinn.
„Þetta er eitthvað sem við stjórnum því miður ekki, þetta eru einhverjar kröfur frá UEFA með flóðljós og svona, en þetta er ekki eitthvað sem við getum haft áhrif á. Ef fólk getur klárað vinnu snemma og mætt og sýnt okkur stuðning væri það frábært,“ segir Jeffs að lokum.