Fotbolti.net
22.09.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Ekkert lið strítt Real Madrid meira heldur en Atlético

Ekkert lið strítt Real Madrid meira heldur en Atlético
Canon

Mynd: EPA

Frá því að Diego Simeone tók við stjórnartaumunum á Atlético Madrid hefur engu liði á Spáni tekist að stríða risaveldinu Real Madrid meira í deildarkeppninni.
Yfirlýsing Real Madrid: Tapið einkenndist af lélegri dómgæslu
TENGT EFNI

Yfirlýsing Real Madrid: Tapið einkenndist af lélegri dómgæslu

Simeone tók við Atlético í desember 2011 og hefur tekist að vinna spænsku deildina í tvígang síðan þá, eftir gríðarlega mikla sögulega yfirburði Real Madrid og Barcelona.

Atlético hefur unnið Evrópudeildina tvisvar undir stjórn Simeone og tvisvar sinnum tapað úrslitaleik Meistaradeildarinnar, bæði skiptin gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Real.

Real Madrid hefur verið mikið yfirburðarlið í Evrópu síðustu 15 ár, á meðan Barcelona hefur verið besta liðið á Spáni á sama tíma, en ekkert lið í La Liga hefur náð fleiri stigum af Real heldur en Atlético síðan Simeone tók við.

Atlético lagði Real að velli um helgina og hefur þar með náð 48 stigum af erkifjendunum í 30 deildarleikjum. Atlético hefur náð í 36 stig úr þessum leikjum og Real í 42 stig (af 90 mögulegum). Mörgum af þessum leikjum lauk með jafntefli og því mikið af stigum sem glötuðust þar.

Forseti La Liga svarar: Hljóta að búa í öðru stjörnukerfi
TENGT EFNI

Forseti La Liga svarar: Hljóta að búa í öðru stjörnukerfi



Til samanburðar hefur Barcelona tekið færri stig af Madrídingum yfir sama tímabil, en á sama tíma krækt sér í fleiri stig úr einvígunum. Barca og Real hafa aðeins gert fjögur jafntefli sín á milli síðan Simeone var ráðinn til Atlético, á meðan 12 af 30 Madrídarslögum hafa endað með jafntefli.

El Clásico hefur verið leikinn 29 sinnum í La Liga frá því að Simeone var ráðinn skömmu fyrir jól 2011 og hefur Barcelona tekist að ná 47 stigum af Real í þessum leikjum.

Það er einu stigi minna heldur en Atlético, en á sama tíma fengu Börsungar 43 stig í sinn hlut fyrir góðan árangur gegn Real - sjö stigum meira en Atlético.

Real hefur á sama tíma nælt í 40 stig úr síðustu 29 einvígum gegn Barcelona.
Ekkert lið strítt Real Madrid meira heldur en Atlético
Canon

Mynd: EPA

Ekkert lið strítt Real Madrid meira heldur en Atlético
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.