Fotbolti.net
22.09.26 - 16:49
Kári Snorrason

Ekki hægt að hrósa Aroni nóg - „Verður sárt saknað“

Auglýsing
Hrósaði Aroni í hástert.

Hrósaði Aroni í hástert.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
„Ég er spenntur fyrir verkefninu, spenntur fyrir því að vera með strákunum svona lengi - þetta er frábær og góður hópur með góða dínamík. Þetta verða pottþétt líka einhverjar áskoranir en mikil tilhlökkun,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson aðspurður um komandi landsleikjaverkefni í Þjóðadeildinni.

Fótbolti.net ræddi við Guðlaug á liðshóteli landsliðsins fyrr í dag þar sem liðið undirbýr sig fyrir fyrsta leik í C-deild Þjóðadeildarinnar en Ísland mætir Eistlandi á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag.
Öðruvísi staða
Ísland (74) er sterkasta liðið í riðlinum ef marka má heimslista FIFA. Næst hæsta lið á eftir er Búlgaría (85) og fylgir Lúxemborg (98) þeim á eftir. Eistland (127) er neðsta lið riðilsins á heimslistanum.

Þetta er staða sem Ísland hefur kannski ekki oft verið í?
„Nei, en okkar markmið er að vinna þennan riðil og það byrjar á laugardaginn,“ sagði Guðlaugur.

Guðlaugur var spurður hvort leikstíll Íslands undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar hentar betur gegn smærri þjóðum.

„Nei nei, ég myndi ekkert segja það. Við erum bara búnir að vera á vegferð núna í rúmt ár. Við erum alltaf að bæta inn hlutum og verðum betri í ákveðnum hlutum. Vonandi getum við sýnt sömu frammistöður gegn minni liðum og gegn stærri liðum.“

Ekki hægt að hrósa Aroni nóg
Aron Einar Gunnarsson tilkynnti í hádeginu í dag að Þjóðadeildin í ár verði hans síðasta keppni með íslenska landsliðinu. Aron Einar var fyrirliði liðsins til fjölda ára og er næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, þremur leikjum á eftir Birki Bjarnasyni.

Guðlaugur segir það verða mikla eftirsjá að Aroni. „Maður gæti ekki hrósað honum nóg fyrir hvað hann hefur lagt í allt þegar kemur að íslenska landsliðinu – hvernig hann er búinn að fórna sér fyrir land og þjóð. Hann er rosalega mikilvægur innan sem utan vallar. Hans verður sárt saknað.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu
TENGT EFNI

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu

„Þetta er frábær og góður hópur með góða dínamík.“

„Þetta er frábær og góður hópur með góða dínamík.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland mætir Eistlandi á laugardaginn.

Ísland mætir Eistlandi á laugardaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Næst leikjahæsti landsliðsmaður frá upphafi.

Næst leikjahæsti landsliðsmaður frá upphafi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.