Fotbolti.net
22.09.26 - 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Forvitnilegt að sjá lið af þessari stærðargráðu spila hér á Íslandi"

Guðni Eiríksson, þjálfari FH.

Guðni Eiríksson, þjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Þetta leggst rosalega vel í okkur," segir Guðni Eiríksson, þjálfari kvennaliðs FH, um Evrópuverkefnið sem er framundan. FH mætir stórliði Eintracht Frankfurt frá Þýskalandi í 2. umferð Evrópubikarsins.

„Það er gaman að mæta einu af sterkustu liðum Evrópu og kljást við þær aðeins," segir Guðni.
Fyrri leikur liðanna fer fram á Kaplakrikavelli á morgun, klukkan 16:00. Seinni leikurinn verður svo í Þýskalandi í næstu viku.

„Það er skemmtilegra að mæta þeim hérna á heimavelli, bæði þá þegar staðan er 0-0 og eins að geta hafið leik klukkan 16:00 en ekki rúmlega 14 ef við hefðum átt seinni leikinn heima. Það er jákvætt og gott, eykur líkurnar á því að fleiri komist á völlinn."

Gríðarlega sterkt lið
Fyrirfram á FH ekki mikinn möguleika enda er Frankfurt eitt sterkasta lið Þýskalands þar sem ein sterkasta deild í heimi er spiluð.

„Við höfum alveg skoðað Frankfurt liðið, þetta er gríðarlega sterkt lið á öllum vígstöðum. Það er vægast sagt krefjandi verkefni fyrir FH að mæta jafn öflugu liði og Frankfurt er. Við förum bara óhrædd til leiks og vonandi náum við eitthvað að stríða þeim. Það væri frábært ef við náum því," segir Guðni.

Frankfurt er líklega stærsta félagið sem er eftir í þessari keppni, ásamt Wolfsburg sem er líka frá Þýskalandi.

„Það er alveg rétt, af öllum þessum andstæðingum sem voru í pottinum þá gátum við varla fengið sterkari lið. Á móti er gaman að horfa á það þannig að það er gaman að bera sig saman við lið af þessari stærðagráðu og sjá hvar við stöndum. FH er í dag eitt af betri liðum landsins og þá sjáum við hvernig er að mæta einu af sterkasta liði Þýskalands. Við erum að bera okkur saman við risastórt lið. Það er bara tilhlökkun. Það vita það allir að við verðum ekki Evrópumeistarar en við verðum að njóta þess að fá svona sterkan andstæðing í heimsókn."

Eitt yngsta lið keppninnar
Guðni sagði fyrir síðasta leik í keppninni að FH væri með yngsta liðið í allri keppninni, en erfitt er að fá það alveg á hreint. Það er alveg hægt að staðfesta það að FH er með eitt allra yngsta lið keppninnar.

„Við erum með það ungt lið að ég sá það ekki fyrir mér að það væri annað lið í Evrópukeppninni með þennan aldur," segir Guðni. „Kannski hef ég bara rangt fyrir mér. Ég ætla ekki að setja sviga og staðfest á þetta. En ef við erum ekki með yngsta liðið þá erum við næst yngsta liðið eða þriðja yngsta liðið."

Þetta eru dýrmætar mínútur fyrir þessa ungu leikmenn.

„Þetta eru mínútur sem fara svo sannarlega í reynslubankann hjá ungum leikmönnum liðsins, að þurfa að díla við andstæðing af þessari stærðargráðu. Það var rosalega reynsla sem leikmenn fengu í 1. umferðinni, að mæta öflugu atvinnumannaliði Apollon. Það var gríaðrlega sterkt að komast í gegnum það. Núna tekur næsta verkefni við. Það eru allir í félaginu stoltir og eru að njóta. Þetta eru forréttindi að fá að vera á þessum stað og spreyta sig í Evrópukeppni," sagði Guðni.

Vonar að það verði vel mætt
Guðni hvetur auðvitað alla sem geta að mæta í stúkuna á morgun.

„Ég vona að það verði vel mætt í stúkuna, svo sannarlega. Það er allavega þannig að leikurinn byrjar klukkan 16, ef við hefðum verið með seinni leikinn heima þá hefði hann byrjað rúmlega 14. Það hjálpar eitthvað, en þetta er ekki draumatíminn. Þetta er eins gott og við getum fengið á þessum árstíma í Krikanum. Ég vona að fólk mæti á leikinn. Að sjálfsögðu stuðningsmenn FH en líka bara þau sem finnst gaman að horfa á kvennafótbolta. Það er forvitnilegt að sjá lið af þessari stærðargráðu spila hér á Íslandi. Þau sem hafa áhuga á kvennafótbolta ættu að koma í Krikann og berja þessar landsliðskonur augum," sagði þjálfari FH-inga að lokum.
FH fagnar sigri.

FH fagnar sigri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Eftir síðasta Evrópuleik FH gegn Apollon frá Kýpur.

Eftir síðasta Evrópuleik FH gegn Apollon frá Kýpur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Sáttur eftir síðasta Evrópuleik.

Sáttur eftir síðasta Evrópuleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað gerir FH á morgun?

Hvað gerir FH á morgun?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Forvitnilegt að sjá lið af þessari stærðargráðu spila hér á Íslandi"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.