22.09.26 - 15:35
Elvar Geir Magnússon
Landsliðsmenn glöddu unga aðdáendur

Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði gaf af sér.

Mynd: KSÍ

Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði gaf af sér.

Mynd: KSÍ

Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli á laugardaginn en þá hefja strákarnir okkar leik í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
Íslenski hópurinn er kominn saman og æfði við haustlegar aðstæður á Laugardalsvelli í dag.
Fyrir æfinguna þá árituðu leikmenn plaköt fyrir unga aðdáendur, nemendur í skólaþorpinu í Laugardal og hér má sjá nokkrar myndir frá KSÍ.

Fjölmennur hópur krakka var mættur til að fá áritanir.

Mynd: KSÍ

Brynjólfur Willumsson einbeittur að árita.

Mynd: KSÍ