Fotbolti.net
22.09.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

McAusland hjálpaði Víði upp og tekur slaginn áfram

McAusland hjálpaði Víði upp og tekur slaginn áfram
Canon

Mynd: Víðir

Hinn þaulreyndi Marc McAusland var fenginn til Garðs fyrir tímabilið og var gerður að fyrirliða félagsins. Hann sinnti lykilhlutverki og er búinn að skrifa undir eins árs framlengingu á samningi.
Marc, sem hafði áður leikið fyrir Suðurnesjaliðin Keflavík, Grindavík og Njarðvík, skipti til Víðis eftir tvö ár með ÍR í Breiðholti.

Marc stóð sig frábærlega í sumar og hjálpaði Víði að vinna 3. deildina. Félagið vann sér þannig aftur inn sæti í 2. deild eftir fall í fyrra.

„Það er ómetanlegt að hafa svona öflugan leiðtoga í hópnum og hlökkum við til að sjá hann áfram á Nesfisk-vellinum næsta sumar," segir meðal annars í tilkynningu frá Víði.

Varnarmaðurinn efnilegi Haraldur Daði Jónsson er þá búinn að framlengja samning sinn við félagið út næsta keppnistímabil eftir að hafa staðið sig vel í sumar. Haraldur er 20 ára gamall og ólst upp í Garði.

„Um er að ræða sannan Víðismann og verður spennandi að fylgjast með þessum öfluga leikmanni á næsta tímabili," segir í tilkynningu Víðis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.