Fotbolti.net
22.09.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Real Madrid vill nýjan forseta í La Liga

Real Madrid vill nýjan forseta í La Liga
Canon

Mynd: Real Madrid

Javier Tebas, forseti La Liga, er kominn í nýtt rifrildi við Real Madrid eftir dramatískan Madrídarslag um helgina.
Forseti La Liga svarar: Hljóta að búa í öðru sólkerfi
TENGT EFNI

Forseti La Liga svarar: Hljóta að búa í öðru sólkerfi

Allir innan herbúða Real Madrid virðast vera æfir útaf dómgæslunni í 2-1 tapi gegn Atlético. Þjálfarinn, leikmenn og félagið sjálft gagnrýndu dómara leiksins mjög harkalega eftir tapið og tjáði Tebas sig um málið.

Tebas skaut á Real Madrid með ummælum sínum og hefur spænska stórveldið svarað hástöfum, með því að kalla eftir nýjum aðila til að taka við forsetastarfi La Liga.

„Það er óþolandi að sjá forseta La Liga halda áfram að nýta stöðu sína til að gagnrýna félagið. Ummæli hans í þetta skiptið eru sérstaklega alvarleg og óskiljanleg," segir í yfirlýsingu frá Real Madrid. „Það er ótrúlega skrýtið að forsetinn haldi áfram að eyða tímanum sínum í að gera lítið úr Real Madrid.

„Með þessari hegðun er hann að skaða ímynd La Liga og spænsks fótbolta um allan heim.

„Forseti La Liga er ekki eigandi deildarinnar, hann er starfsmaður sem starfar í þágu félagsliðanna sem taka þátt. Félög deildarinnar þurfa forseta sem starfar af heilindum, einhvern sem þau geta treyst til að leiða deildarkeppnina í rétta átt."


Real Madrid er með 15 stig eftir 7 umferðir á nýju tímabili í La Liga, sex stigum á eftir Spánarmeisturum Barcelona sem eru með fullt hús stiga.

Þess má geta að auk þess að vera forseti La Liga þá starfar Tebas einnig sem varaforseti spænska fótboltasambandsins.
Real Madrid vill nýjan forseta í La Liga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.