Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. október 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England mætir Írlandi tæpri viku fyrir Íslandsleikinn
Mynd: Getty Images
Enska landsliðið mun mæta Írlandi í vináttulandsleik á Wembley þann 12. nóvember.

England átti að mæta Nýja-Sjálandi, en hætt var við þann leik. Nýja-Sjáland sagði að að kórónuveiran geri það að verkum að erfitt sé að fá leikmenn í verkefnið og að ferðalög séu mjög flókin. Því geti liðið ekki mætt til leiks.

England heyrði því í nágrönnum sínum sem ætla að mæta til leiks á Wembley.

England á svo útileik gegn Belgíu þann 15. nóvember í Þjóðadeildinni og gegn Íslandi á heimavelli 18. nóvember.

Þetta verður í fyrsta sinn í sjö ár sem Írland mætir á Wembley, en þegar liðin mættust 2013 enduðu leikar 1-1.
Athugasemdir
banner
banner
banner