22.10.26 - 18:45
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin: Sunderland gerði jafntefli - Willum í sigurliði

Mynd: EPA

Mynd: NEC Nijmegen

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrstu átta leikjum dagsins er lokið í deildarkeppni Evrópudeildarinnar þar sem Sunderland heimsótti Lech Poznan til Póllands og náði í jafntefli.
Leikurinn var opinn og fjörugur þar sem bæði lið fengu góð marktækifæri en aðeins litu tvö mörk dagsins ljós. Sunderland byrjaði af miklum krafti og náði hinn efnilegi Timur Tutyerov forystunni strax á 2. mínútu með skalla af stuttu færi eftir frábæran undirbúning Nilson Angulo sem vann boltann af miðverði Poznan.
Bæði lið fengu góð marktækifæri en boltinn rataði ekki aftur í netið fyrr en á 70. mínútu þegar Svíinn Leo Bengtsson skoraði með föstu skoti eftir hornspyrnu. Bæði lið fengu færi til að gera sigurmark en lokatölur urðu 1-1. Sunderland er með 7 stig eftir 3 umferðir en þetta er aðeins fyrsta stigið sem Poznan nælir sér í.
Willum Þór Willumsson er eini Íslendingurinn sem kom við sögu. Hann fékk að spreyta sig allra síðustu mínúturnar í frábærum sigri NEC Nijmegen gegn Dinamo Zagreb í Króatíu. Lokatölur urðu 2-4 fyrir Nijmegen sem er með fjögur stig, alveg eins og Dinamo.
Nick Woltemade skoraði þá og lagði upp er ítalska stórveldið Juventus gerði jafntefli við Rennes. Woltemade lagði upp snemma leiks en gestirnir frá Frakklandi snéru stöðunni við og leiddu eftir jafnan fyrri hálfleik, 1-2.
Síðari hálfleikurinn var áfram nokkuð jafn og gerði Woltemade jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á 67. mínútu. Undir lokin setti miðvörðurinn Jhon Lucumí boltann í netið en markið ekki dæmt gilt vegna naumrar rangstöðu og því var niðurstaðan 2-2. Bæði Juve og Rennes eru enn ósigruð á upphafi tímabilsins í Evrópudeildinni, Ítalirnir eiga 7 stig á meðan Frakkarnir eru með 5 stig.
Bayer Leverkusen hafði betur á útivelli gegn OFI Crete á meðan Marseille tapaði fyrir Sturm Graz í Austurríki. AZ Alkmaar skoraði fjögur mörk í þægilegum sigri í Armeníu og má sjá úrslit dagsins hér fyrir neðan.
Lech Poznan 1 - 1 Sunderland
0-1 Timur Tuterov ('2 )
1-1 Leo Bengtsson ('70 )
Dinamo Zagreb 2 - 4 NEC Nijmegen
0-1 Clement Bischoff ('25 )
1-1 Dion Beljo ('33 )
2-1 Dion Beljo ('37 )
2-2 Brian Linssen ('45 )
2-3 Brian Linssen ('54 )
2-4 Tjaronn Chery ('80 )
Juventus 2 - 2 Rennes
1-0 Zeki Celik ('5 )
1-1 Mousa Al-Tamari ('15 )
1-2 Boulaye Dia ('43 , víti)
2-2 Nick Woltemade ('67 , víti)
OFI Crete 0 - 2 Bayer Leverkusen
0-1 Jonas Hofmann ('35 )
0-2 Jonas Hofmann ('37 )
Sturm Graz 1 - 0 Marseille
1-0 Oumar Diakite ('13 )
Ararat-Armenia 0 - 4 AZ Alkmaar
0-1 Valdemar Byskov ('21 )
0-2 Weslley Patati ('27 )
0-3 Weslley Patati ('76 )
0-4 Mexx Meerdink ('79 )
Ferencvaros 4 - 1 Torreense
1-0 Bamidele Yusuf ('20 )
1-1 Manuel Pozo ('23 )
2-1 Mariano Gomez ('58 )
3-1 Diadie Mohamed ('80 , sjálfsmark)
4-1 Krisztian Lisztes ('89 )
St. Gilloise 4 - 0 Hapoel Beer Sheva
1-0 Raul Florucz ('45 , víti)
2-0 Guilherme Smith ('60 )
3-0 Dylan Aquino ('77 )
4-0 Guilherme Smith ('81 )