Fotbolti.net
22.10.26 - 18:59
Ívan Guðjón Baldursson

Sambandsdeildin: Eggert lagði upp - Tómas tapaði gegn Salah

Brighton mistókst að skora í Tékklandi

Sambandsdeildin: Eggert lagði upp - Tómas tapaði gegn Salah
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrstu leikjum dagsins er lokið í Sambandsdeildinni og komu nokkrir Íslendingar við sögu. Eggert Aron Guðmundsson var einn af þremur Íslendingum í byrjunarliði Brann og lagði hann upp í öruggum sigri.
Brann rúllaði yfir Kauno Zalgiris er liðin mættust í Litháen og voru Sævar Atli Magnússon og Kristall Máni Ingason einnig meðal byrjunarliðsmanna Brann, sem er með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar.

Tómas Bent Magnússon lék allan leikinn á miðju Hearts sem tapaði gegn Trabzonspor í Tyrklandi. Mohamed Salah skoraði og lagði upp fyrir Tyrkina í 2-0 sigri. Hearts er með eitt stig eftir jafntefli við Nordsjælland í fyrstu umferð.

Viktor Bjarki Daðason fékk þá að spila seinni hálfleikinn í 2-2 jafntefli FC Kaupmannahafnar á útivelli gegn Rauðu stjörnunni í Serbíu. Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen voru ónotaðir varamenn í liði FCK sem er með fjögur stig.

Að lokum var Sverrir Ingi Ingason fjarverandi vegna meiðsla í stórsigri Panathinaikos gegn Kairat Almaty. Grikkirnir eiga sex stig eftir tvo leiki.

Í öðrum leikjum dagsins steinlá Getafe óvænt á heimavelli gegn svissneska félaginu Lugano á meðan Mjällby gerði jafntefli í Georgíu og viðureign Nordsjælland gegn CSKA Sofia endaði 2-2.

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton, sem hefur farið mjög vel af stað á deildartímabilinu, gerði að lokum markalaust jafntefli við FK Jablonec í Tékklandi.

Fabian Hürzeler hvíldi flesta lykilmenn Brighton og voru lærlingar hans sterkari aðilinn í Tékklandi, en mistókst að setja boltann í netið. Brighton er með fjögur stig.

Kauno Zalgiris 1 - 4 SK Brann
0-1 Niklas Castro ('7 , víti)
1-1 Renan Oliveira ('12 )
1-2 Noah Holm ('25 )
1-3 Noah Holm ('40 )
1-4 Noah Holm ('85 )

Trabzonspor 2 - 0 Hearts
1-0 Mohamed Salah ('32 , víti)
2-0 Franculino ('58 )
Rautt spjald: Sidny Lopes Cabral, Trabzonspor ('90)

Crvena Zvezda 2 - 2 FC Kobenhavn
1-0 ('29 , sjálfsmark)
2-0 Timi Max Elsnik ('34 )
3-0 Vasilije Kostov ('41 )
3-1 Maher Carrizo ('70 )

Kairat 1 - 5 Panathinaikos
0-1 Vicente Taborda ('6 )
0-2 Cyriel Dessers ('24 , víti)
0-3 Cyriel Dessers ('47 )
0-4 Kings Kangwa ('57 )
0-5 Elmin Rastoder ('75 )
1-5 Ismail Bekbolat ('79 )

Jablonec 0 - 0 Brighton

Getafe 2 - 5 Lugano
1-0 Ivan Azon ('2 )
1-1 Albian Ajeti ('3 )
1-2 Yanis Cimignani ('7 )
1-3 Albian Ajeti ('26 )
1-4 Uran Bislimi ('50 )
2-4 Borja Mayoral ('74 )
2-5 Kevin Behrens ('90 )

Iberia 1999 1 - 1 Mjallby
1-0 Jemali-Giorgi Jinjolava ('55 , víti)
1-1 Tom Pettersson ('89 )

FC Nordsjaelland 2 - 2 CSKA Sofia
0-1 Leandro Godoy ('8 )
1-1 Ibrahim Adel ('55 )
2-1 Ibrahim Adel ('67 )
2-2 Leandro Godoy ('88 )
Rautt spjald: Justin Janssen, FC Nordsjaelland ('76)

Inter Escaldes 1 - 3 Universitatea Craiova
0-1 Assad Al-Hamlawi ('3 )
0-2 Stefan Baiaram ('5 )
1-2 Borja Arellano ('77 )
1-3 Simon Elisor ('86 )

Pafos FC 1 - 1 Riga
0-1 Caio ('67 )
1-1 Biel ('76 )
Sambandsdeildin: Eggert lagði upp - Tómas tapaði gegn Salah
Canon

Mynd: Hearts

Sambandsdeildin: Eggert lagði upp - Tómas tapaði gegn Salah
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.