Fotbolti.net
21.10.26 - 21:00
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús

Declan Rice fagnar jöfnunarmarkinu

Declan Rice fagnar jöfnunarmarkinu

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Þýskalandsmeistarar Bayern München og Englandsmeistarar Arsenal skildu jöfn, 2-2, í þriðju umferð Meistaradeildar Evrópu á Allianz Arena í München í kvöld.
Arsenal varð fyrir miklu áfalli snemma leiks þegar Bukayo Saka þurfti að fara meiddur af velli. Eberechi Eze kom inn á í hans stað og aðeins fimmtán mínútum síðar var það einmitt hann sem kom Arsenal yfir. Martin Ödegaard átti þá stórglæsilega langa sendingu inn á Eze sem lagði boltann fyrir sig og hamraði honum undir Manuel Neuer í markinu.

Bæjarar voru hins vegar ekki lengi að svara. Harry Kane fékk boltann á miðsvæðinu og átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Arsenal á Alphonso Davies sem kláraði færið af öryggi. Sendingin hjá Kane var í algjörum sérflokki og sýndi enn og aftur hversu mikilvægur hann er fyrir Bayern, ekki bara sem markaskorari heldur einnig sem leikstjórnandi.

Arsenal var óvenjulega opið varnarlega í fyrri hálfleiknum og Mikel Arteta hefur eflaust ekki verið ánægður með það sem hann sá.

Í síðari hálfleik buðu David Raya og Manuel Neuer upp á frábærar vörslur með stuttu millibili, en þegar um hálftími var til leiksloka fengu Bæjarar vítaspyrnu. Kane fékk þá boltann í teignum og ætlaði að láta vaða þegar Jurrien Timber renndi sér fyrir skotið. Boltinn fór í hönd Timber og skoppaði þaðan í hendur tveggja annarra Arsenal-manna.

Dómarinn benti á vítapunktinn og Kane steig á punktinn. Hann var öryggið uppmálað og sendi Raya í vitlaust horn. Þetta var tíundi leikurinn í röð sem Kane skorar í Meistaradeildinni og er hann því aðeins einum leik frá því að jafna met Ronaldo.

Arsenal lagði þó ekki árar í bát og þegar átta mínútur voru eftir jafnaði Declan Rice metin. Hann keyrði þá fram með boltann, átti laglegt samspil við Viktor Gyökeres og slapp inn fyrir vörn Bayern áður en hann hamraði boltanum undir Neuer.

Lokatölur 2-2 á Allianz Arena. Arsenal er með sjö stig eftir þrjár umferðir en Bæjarar hafa fimm stig.

Villa með fullt hús eftir sigur á Amin Cosic og félögum

Aston Villa átti ekki í miklum vandræðum með Noregsmeistara Viking og vann góðan 3-1 sigur. Ross Barkley hélt áfram að láta til sín taka í Meistaradeildinni og skoraði annan leikinn í röð þegar hann stangaði hornspyrnu Ibrahim Mbaye í netið.

Emi Buendía bætti síðan við öðru marki úr vítaspyrnu og bætti þar með upp fyrir hrikalegt klúður skömmu áður, þegar hann skallaði framhjá nánast opnu marki. Villa bætti þriðja markinu við þegar hálftími var til leiksloka. Alysson átti þá skot sem fór í Henrik Heggheim og þaðan í netið.

Amin þreytti frumraun sína með Viking í Meistaradeildinni þegar hann kom inn á á 76. mínútu og bættist þar með í fámennan hóp Íslendinga sem hafa spilað í keppninni.

Skömmu eftir innkomu hans minnkaði Viking muninn. Peter Christiansen fékk þá frábæra fyrirgjöf inn í teiginn og skoraði með glæsilegu viðstöðulausu skoti á lofti.

Fleiri urðu mörkin ekki og Aston Villa fagnaði sínum þriðja sigri í Meistaradeildinni. Villa er með fullt hús stiga en Viking hefur eitt stig.

Real Madrid með sýningu

Real Madrid er einnig með fullt hús stiga eftir sannfærandi 4-1 sigur á RB Leipzig á Santiago Bernabeu.

Bernardo Silva kom Madrídingum yfir á markamínútunni, þeirri 44., þegar Arda Güler lét vaða að marki. Boltinn fór í fætur markvarðar Leipzig sem áttaði sig ekki á því hvar hann hafði endað. Bernardo var hins vegar vel vakandi, hirti frákastið og skoraði.

Güler komst sjálfur á blað á 52. mínútu með heldur skondnu marki. Kylian Mbappe hafði þá komið boltanum í átt að markinu þegar Tyrkinn mætti við marklínuna og ýtti honum yfir. Hann stal þar með markinu af Frakkanum.

Mbappe þurfti þó ekki að bíða lengi eftir sínu marki og það var af dýrari gerðinni eftir stoðsendingu Yan Diomande. Leipzig náði að minnka muninn skömmu síðar þegar Tidiam Gomis skoraði eftir afar vafasaman varnarleik Madrídinga.

Heimamenn svöruðu hins vegar nánast samstundis og þar var Diomande aftur á ferðinni. Hann fékk sendingu frá Brahim Diaz og hamraði boltann viðstöðulaust upp í nærstöngina og inn í samskeytin. Stórkostlegt mark hjá Diomande gegn sínum gömlu félögum.

Real Madrid hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína í keppninni, rétt eins og Aston Villa, Liverpool, PSG og Real Betis, sem vann 1-0 sigur á Feyenoord í Sevilla.

Tíu leikmenn Inter mörðu 1-0 sigur á Shakhtar Donetsk, Club Brugge vann Lens 3-0 og LASK Linz gerði sér lítið fyrir og vann óvæntan 3-2 útisigur á Sporting í Portúgal.

Aston Villa 3 - 1 Viking FK
1-0 Ross Barkley ('23 )
2-0 Emiliano Buendia ('37 , víti)
3-0 Henrik Heggheim ('62 , sjálfsmark)
3-1 Peter Christiansen ('84 )

Club Brugge 3 - 0 Lens
1-0 Hans Vanaken ('45 )
2-0 Joaquin Seys ('50 )
3-0 Carlos Forbs ('72 )

Bayern 2 - 2 Arsenal
0-1 Eberechi Eze ('25 )
1-1 Alphonso Davies ('35 )
2-1 Harry Kane ('61 , víti)
2-2 Declan Rice ('82 )

Inter 1 - 0 Shakhtar D
1-0 Carlos Augusto ('77 )
Rautt spjald: Alessandro Bastoni, Inter ('68)

Betis 1 - 0 Feyenoord
1-0 Alarcon Isco ('59 , víti)

Real Madrid 4 - 1 RB Leipzig
1-0 Bernardo Silva ('43 )
2-0 Arda Guler ('52 )
3-0 Kylian Mbappe ('83 )
3-1 Tidiam Gomis ('85 )
4-1 Yan Diomande ('87 )

Sporting 2 - 3 LASK Linz
1-0 Luis Suarez ('5 , víti)
1-1 Christoph Lang ('15 )
1-2 Sasa Kalajdzic ('63 )
1-3 Krystof Danek ('68 )
2-3 Luis Suarez ('89 )
Eze skoraði fyrra mark Arsenal

Eze skoraði fyrra mark Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane skoraði tíunda Meistaradeildarleikinn í röð

Harry Kane skoraði tíunda Meistaradeildarleikinn í röð

Canon

Mynd: EPA

Mbappe hlær að Güler sem stal marki af honum

Mbappe hlær að Güler sem stal marki af honum

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er með fullt hús eftir þrjá leiki

Aston Villa er með fullt hús eftir þrjá leiki

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.