Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 22. nóvember 2019 11:16
Magnús Már Einarsson
Drátturinn í B, C og D-deild: Fara Norðmenn á EM?
Lars Lagerback landsliðsþjálfari Norðmanna.
Lars Lagerback landsliðsþjálfari Norðmanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norður-Írar mæta Bosníu-Hersegóvínu í undanúrslitum B-deildar.
Norður-Írar mæta Bosníu-Hersegóvínu í undanúrslitum B-deildar.
Mynd: Getty Images
Búið er að draga um það hvaða lið mætast í undanúrslitum í B, C og D-deild Þjóðadeildarinnar. Sigurliðið úr hverri deild fær sæti á EM næsta sumar.

Lars Lagerback og lærisveinar hans í norska landsliðinu taka þátt í umspilinu í C-deildinni. Þar mæta þeir Serbum í undanúrslitum.

Undanúrslitin fara fram 26. mars og úrslitaleikirnir verða 31. mars.

B-deild:

Undanúrslit
Bosnía-Hersegóvína - Norður-Írland
Slóvakía - Írland

Úrslit
Bosnía-Hersegóvína/Norður-Írland - Slóvakía/Írland

C-deild:

Undanúrslit
Skotland - Ísrael
Noregur - Serbía

Úrslit
Noregur/Serbía - Skotland/Ísrael

D-deild:

Undanúrslit
Georgía - Hvíta-Rússland
Norður Makedónía - Kósóvó

Úrslit
Georgía/Hvíta-Rússland - Norður Makedónía/Kósóvó
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner