Fotbolti.net
22.11.20 - 18:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Liverpool og Leicester: Meiðslavandræði

Fabinho byrjar hjá Liverpool.

Fabinho byrjar hjá Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 19:15 verður flautað til leiks í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni - það er ekki leikur af verri gerðinni - þegar Leicester og Liverpool eigast við.
Leikurinn fer fram á Anfield. Liverpool er í fjórða sæti með 17 stig og Leicester er í þriðja sæti með 18 stig.

Liverpool er auðvitað ríkjandi Englandsmeistari en liðið er í miklum meiðslavandræðum þessa stundina. Jordan Henderson, Mohamed Salah, Joe Gomez, Virgil van Dijk, Alex Oxlade-Chamberlain, Rhys Williams, Thiago Alcantara og Trent Alexander-Arnold eru allir frá.

Fabinho er klár í slaginn og hann byrjar í miðverði með Joel Matip. Curtis Jones byrjar á miðjunni með Keita og Wijnaldum, og þá er Diogo Jota frammi með Firmino og Mane.

Það vantar einnig nokkra leikmenn í Leicester vegna meiðsla og má þar helst nefna Wilfried Ndidi, Ricardo Pereira, Timothy Castagne og Wesley Fofana.

Hér að neðan má sjá bæði byrjunarlið.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Robertson, Milner, Matip, Fabinho, Keita, Wijnaldum, Jones, Mane, Jota, Firmino.
(Varamenn: Adrian, Minamino, Tsimikas, Origi, Phillips, Clarkson, Williams)

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Justin, Fofana, Evans, Fuchs, Mendy, Tielemans, Barnes, Albrighton, Maddison, Vardy.
(Varamenn: Ward, Morgan, Iheanacho, Under, Choudhury, Praet, Thomas)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.