22.11.26 - 10:28
Brynjar Ingi Erluson
Heimsmeistari féll í yfirlið í miðju viðtali

Leandro Paredes féll í yfirlið í viðtalinu

Mynd: EPA

Argentínski landsliðsmaðurinn Leandro Paredes, sem leikur með Boca Juniors í heimalandinu, var gjörsamlega örmagna eftir sigur liðsins í Copa Sudamericana í Kólumbíu í nótt.
Paredes, sem varð heimsmeistari með Argentínu fyrir fjórum árum og lék úrslitaleikinn gegn Spáni á HM í sumar, er fastamaður í liði Boca.
Hann var í byrjunarliðinu gegn brasilíska liðinu Atlético-MG í úrslitaleik Copa Sudamericana, sem er sambærileg keppni við Evrópudeildina hér í Evrópu.
Eftir að Boca hafði tryggt sér titilinn mætti Paredes í viðtal, en hitinn í Kólumbíu hafði greinilega tekið sinn toll. Í miðju viðtalinu leið skyndilega yfir hann.
Atvikið var nokkuð óhugnanlegt á að horfa, en sem betur fer er allt í lagi með Paredes, sem hafði líkt og margir aðrir átt erfitt með að þola hitann.

???????? Paredes se desmayó en vivo debido al insoportable CALOR EN COLOMBIA. El futbolista ya está bien y se encuentra estable. https://t.co/v0m8W73gse
— PaseClave (@paseclave__) November 22, 2026