Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 23. janúar 2021 19:13
Victor Pálsson
Jökull hélt hreinu í öruggum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Andrésson spilaði sinn fyrsta leik fyrir lið Morecambe í dag er liðið mætti Colchester í fjórðu efstu deild Englands.

Jökull var óvænt fenginn til Morecambe í gær á neyðarláni en hann á að vera hjá félaginu í sjö daga.

Aðeins degi seinna spilaði markvörðurinn sinn fyrsta leik og gerði vel er Morecambe vann 3-0 heimasigur.

Jökull hélt þar hreinu í öruggum sigri og hjálpaði Morecambe að komast í sjötta sæti deildarinnar.

Eftir 23 umferðir er Morecambe fjórum stigum frá toppnum og stefnir á að komast upp í League 1 deildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner