Jökull Andrésson lék allan leikinn í marki Exeter gegn Colchester í League 2 á Englandi í kvöld.
Exeter vann leikinn á útivelli með tveimur mörkum gegn einu. Liðið er nú í sjötta sæti deildarinnar sem er umspilssæti.
Jökull er á láni hjá Exeter frá Reading út tímabilið.
Kristófer Ingi Kristinsson lék þá átján mínútur þegar Jong PSV gerði 2-2 jafntefli gegn Helmond Sport á heimavelli. PSV jafnaði leikinn í uppbótartíma.
Jong PSV er í sextánda sæti í næstefstu deild Hollands.
Athugasemdir