Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 12:30
Kári Snorrason
Valur hefur boðið í Kristófer Inga
Í leik gegn Val á síðasta tímabili.
Í leik gegn Val á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur lagt fram tilboð í Kristófer Inga Kristinsson, framherja Breiðabliks, samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Kristófer var ekki í leikmannahóp Breiðabliks er liðið mætti FH í Lengjubikarnum síðastliðinn fimmtudag en samningur hans við Breiðablik rennur út í lok árs.

Greint var frá áhuga Vals á Kristófer fyrr í mánuðinum en þá var líka sagður áhugi frá Katar á leikmanninum. Kristófer hefur sjálfur tengingu í Val þar sem Kristinn Ingi Lárusson, stjórnarmaður í Val, er faðir Kristófers.

Hann skoraði fimm mörk í tíu byrjunarliðsleikjum með Breiðabliki á síðasta ári og kom hann inn á tíu sinnum til viðbótar.

Kristófer er uppalinn hjá Stjörnunni og hefur á ferlinum spilað með Willem II, varaliði PSV, Grenoble, SönderjyskE, VVV-Venlo. Hann lék á sínum tíma 33 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði tvö mörk.

Athugasemdir
banner
banner