Fotbolti.net
23.03.22 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Var hættur að dreyma um atvinnumennsku - „Þetta var síðasta tækifærið"

Var hættur að dreyma um atvinnumennsku - „Þetta var síðasta tækifærið"
Canon

Mynd: Houston Dynamo

Þorleifur 'Thor' Úlfarsson er byrjaður að spila með Houston Dynamo eftir að hann var valinn númer fjögur í nýliðavali MLS deildarinnar í janúar.

Hann var til viðtals í hlaðvarpsþættinum Ungstirnin á dögunum. Þar talaði hann um að hann hafi verið búinn að gefa atvinnumannaferilinn uppá bátinn þegar hann fór til Bandaríkjanna í skóla.

„Ég hugsaði, ég er tvítugur að fara til Bandaríkjanna, ég er ekkert að fara verða atvinnumaður lengur. Duke er topp 5 skóli í Bandaríkjunum námslega séð og líka góðir í bolta þannig ég get sameinað þetta," sagði Þorleifur.

„Svo þegar maður kemur út og byrjar að tala við fólk sem veit meira um þetta þá sér maður að þetta sé möguleiki. Þá sá ég að þetta var síðasta tækifærið til að meika það."

Þorleifur er spenntur að spila með Hector Herrera sem gengur til liðs við félagið í sumar frá Ateltico Madrid.

„Gersamlega galið, þú hefðir þurft að slá mig utanundir ef þú hefðir sagt við mig að ég væri að fara spila með Hector Herrera eftir ár. Það  eru allir spenntir, nokkrir miðjumenn sem eru ekki eins spenntir. Þetta er risastórt, hann verður líklega launahæsti leikmaður MLS."

<b>Ungstirnin</b> - Prófessorinn og Thor

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.