Óskar ósáttur: Hefur áður dæmt vítaspyrnu á síðustu sekúndunni á Viktor Örn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er pirraður að hafa ekki klárað þennan leik allavega með eitt stig," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Blika eftir tap í Eyjum í dag en ÍBV skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi dómari dæmir vítaspyrnu á síðustu sekúndunni á Viktor Örn."
„Mér fannst við vera mikið sterkari aðilinn í seinni hálfleik og stjórnum leiknum en svo fá þeir einhvern aukakraft undir lokin og við hleypum þeim inn í leikinn en það er eins og það er," sagði Óskar.
Hann var ánægður með spilamennskuna í erfiðum aðstæðum. Hásteinsvöllur leit ekkert sérstaklega vel út en Óskar Hrafn vildi lítið tjá sig um það.
„Ég ætla ekki að tjá mig um aðstæðurnar, þú færð það sama út úr mér eins og með þjóðfélagsástandið í einhverju landi. Þú veist svarið og það hefur ekkert upp á sig að vera tala um það núna. Þetta eru erfiðar og krefjandi aðstæður sem við vissum og kom okkur ekkert á óvart," sagði Óskar.
Óskar hefur áhyggjur af byrjuninni á mótinu en biður fólk um að afskrifa ekki liðið. Hann gat þó ekki tekið mikið jákvætt út úr leiknum í dag.
„Ég var ánægður með það hvernig við þorðum að spila í seinni hálfleik á móti vindi á velli sem var krefjandi en ég er svo óánægður með margt annað að það núllar sig út. Við þurfum bara að vera betri. Sem betur fer er lítið búið að mótinu þannig við höfum enn tíma en við verðum að passa okkur að missa ekki liðin of langt framúr okkur," sagði Óskar.


