Osimhen efstur á blaði hjá Man Utd - Aukin samkeppni um Cunha - Tottenham gæti reynt við Rashford
   mið 23. apríl 2025 18:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Stöð 2 Sport 
Ungstirnið með eyrnabólgu
Sigurður Breki Kárason.
Sigurður Breki Kárason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú er leikur FH og KR í þriðju umferð Bestu deildarinnar að hefjast. Hinn fimmtán ára gamli Sigurður Breki Kárason er ekki með Vesturbæjarliðinu í kvöld vegna eyrnabólgu.

Sigurður Breki var óvænt í byrjunarliði KR í 3-3 jafnteflinu gegn Val í síðustu umferð deildarinnar en þar lék hann sinn fyrsta leik í Bestu deildinni.

Hann skoraði svo eitt af mörkum KR í 11-0 sigrinum gegn KÁ í Mjólkurbikarnum um páskana.

Lestu um leikinn: FH 2 -  2 KR

„Hann er með eyrnabólgu og er á sýklalyfjum. Hann lagðist í rúmið strax eftir KÁ leikinn á laugardaginn og er enn veikur," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leikinn í Kaplakrika.
Athugasemdir
banner
banner