Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Besta spjallið - Máni Péturs fer yfir stöðuna í Garðabæ
Útvarpsþátturinn - Arnór Ingvi og HM að hefjast
Harkið - Hiti í Vogunum
Uppbótartíminn - Allt var það eftir bókinni
Innkastið - Farið yfir geggjaða umferð með Gulla Jóns
Útvarpsþátturinn - Slot rekinn og þrjú lið í Bestu í lagi
Hugarburðarbolti GW Uppgjörið með Villa Neto og Tönju Sif
Harkið X Ásgeir Frank
Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið
Uppbótartíminn - Algjör sigur fyrir þessa deild
Hugarburðarbolti GW 38 Sigurvegarinn krýndur!
Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi
Enski boltinn - Eftir 22 ár af sársauka
Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið
Hugarburðarbolti GW 37 Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið
Harkið - Króksarar með fullt hús
Innkastið - Vafasöm vegferð
Útvarpsþátturinn - Bikarskellir og Ágúst Orri
Fótbolta nördinn: Úrslit - Fótbolti.net vs Draumaliðið
Harkið - Haukavélin byrjuð að malla
banner
   fim 23. apríl 2026 20:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar Kristins: Stórfurðulegt að við töpuðum
,,Við bara náðum ekki að koma boltanum yfir línuna
,,Við bara náðum ekki að koma boltanum yfir línuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fred átti frábært skot sem Aron Birkir varði meistaralega.
Fred átti frábært skot sem Aron Birkir varði meistaralega.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýr Þórsvöllur.
Nýr Þórsvöllur.
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
„Mér fannst stórfurðulegt að við töpuðum leiknum, mér fannst við hafa mikla yfirburði fyrstu 20-25 mínúturnar en svo koma þeir sterkir inn restina af fyrri hálfleiknum og þetta varð jafn leikur. Við erum „soft" í markinu, þeir fá skyndisókn og markið er stórglæsilegt. Eftir það tökum við algjörlega yfir„" segir Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, eftir tap gegn Þór á VÍS vellinum í dag.

Framarar voru á hraðferð í flug suður og því var ekki kostur á vídeóviðtali en fréttamaður greip Rúnar á leið í rútu Framara. Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum efst.

Sigurmark leiksins kom eftir um 50 mínútna leik og eftir það bankaði Fram fast en náði ekki að skora jöfnunarmarkið.

Lestu um leikinn: Þór 1 -  0 Fram

„Ég veit ekki hvað við áttum margar fyrirgjafir og komum boltanum trekk í trekk í góðar stöður í hornunum. En við bara náðum ekki að koma boltanum yfir línuna."

Fékk útskýringu frá dómarateyminu
Fram gerði tilkall til vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Átti það að vera víti?

„Nei, ég held ekki. Ég fékk ágætis útskýringu frá dómarateyminu, boltinn fer í líkamshluta leikmannsins og þaðan í höndina. Ef höndin er í eðlilegri stöðu þá er það ekki vítaspyrna samkvæmt dómaranum. Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur og ætla svo sem ekkert að kvarta yfir því. Dómararnir áttu flottan leik, ekkert út á þá að setja."

Boltinn vildi ekki inn
Hefðir þú viljað að þínir menn myndu gera betur í færasköpun?

„Ég hefði viljað fá stærri færi. Þetta var fullt af hálffærum og svo ver hann (Aron Birkir í marki Þórs) glæsilega frá Fred og björguðu stórkostlega þegar einhverjir vildu vítaspyrnu, Ægir er í hörku skotfæri inn á vítateig en skýtur framhjá. Við eigum fullt af sénsum til að skora mörk, en heppnin var ekki með okkur og boltinn vildi ekki inn."

Vill að liðið þori meiru
Er eitthvað sem þú vildir gera öðruvísi í kringum leikinn?

„Ég vil að liðið mitt þori meiru, við getum ekki byrjað leikinn vel í 20 mínútur, svo dottið niður og svo tekið leikinn algjörlega yfir og sýnum hversu góðir við erum þegar við erum komnir undir. Það er dálítið dapurt finnst mér og ég er ósáttur við það. Við getum spilað vel, getum búið til færi og getum sótt og þrýst liðum niður. En það þýðir ekkert að vera bíða eftir því þangað til við erum 1-0 undir."

Stórkostleg breyting fyrir Þórsara
Hvernig var að koma á nýjan völl Þórsara?

„Frábært, frábær ástæða, öll umgjörðin hjá Þór til fyrirmyndar og stórkostleg breyting fyrir félagið að fá þessa aðstöðu."

Hrósar Þór og vill sjá meiri kraft frá sínu liði
Hvernig líst þér á framhaldið?

„Mér líst vel á það, mér finnst við ekki hafa spilað vel í fyrstu þremur leikjunum en samt erum við komnir með fjögur stig og ég er ósáttur að hafa ekki tekið fimmta stigið í dag eða jafnvel fleiri. Þór gerði sitt, þeir voru skipulagðir og flottir - hörku fínir strákar og þeir eru að reyna spila fótbolta frá aftasta manni. Mér fannst við bara eiga að nýta yfirburðina í byrjun betur, búa til betri færi og jafnvel skora 1-2 mörk, en við gerðum það ekki og mér finnst vanta smá herslumun í kraftinn í liðinu," segir Rúnar.
Slapp
banner