Fotbolti.net
23.05.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Iniesta að taka við sem aðalþjálfari hjá Gulf United

Iniesta að taka við sem aðalþjálfari hjá Gulf United
Canon

Mynd: EPA

Spænska goðsögnin Andrés Iniesta er að taka við sínu fyrsta starfi sem aðalþjálfari. Fabrizio Romano greinir frá.
Iniesta er búinn að semja við Gulf United FC í Dúbaí, Katar, sem er með nokkur þekkt nöfn innanborðs.

Þar má finna fyrrum úrvalsdeildarleikmanninn Leroy Fer og fyrrum framherja sænska landsliðsins Robin Quaison.

Fer er 36 ára varnartengiliður sem lék fyrir Norwich, QPR og Swansea í ensku úrvalsdeildinni auk þess að spila 11 A-landsleiki fyrir Holland.

Quaison er 32 ára og setti 14 mörk í 52 landsleikjum fyrir Svíþjóð.

Iniesta er 42 ára gamall og hefur unnið að þjálfaragráðum síðustu misseri. Hann lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum eftir að hafa gert garðinn frægan með Barcelona og spænska landsliðinu.

Iniesta í viðræðum við marokkóska landsliðið
TENGT EFNI

Iniesta í viðræðum við marokkóska landsliðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.