Fotbolti.net
23.05.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Kenan Yildiz og Nico Paz verðlaunaðir á lokahófi Serie A

Lautaro Martínez elskar lífið í Mílanó.

Lautaro Martínez elskar lífið í Mílanó.

Canon

Mynd: EPA

Inter sýndi mikla yfirburði til að vinna Ítalíumeistaratitilinn í ár. Eins og greint hefur verið frá var Cristian Chivu valinn besti þjálfari ársins og Federico Dimarco leikmaður ársins en einn annar leikmaður Inter var verðlaunaður á lokahófi Serie A.
Það er framherjinn og fyrirliðinn Lautaro Martínez sem hlaut nafnbótina besti framherji ársins á deildartímabilinu. Lautaro endar að öllum líkindum sem markahæsti leikmaður tímabilsins með 17 mörk og 6 stoðsendingar í 29 leikjum. Anastasios Douvikas og Marcus Thuram koma næstir á eftir með 13 mörk ásamt Donyell Malen sem kom sem stormsveipur inn í deildina í janúarglugganum.

Mile Svilar markvörður Roma er valinn sem besti markvörður tímabilsins og þá er hægri bakvörður Cagliari, Marco Palestra, valinn sem besti varnarmaðurinn.

Nico Paz, stjörnuleikmaður Como, er besti miðjumaður tímabilsins og hlýtur Kenan Yildiz, sóknarleikmaður Juventus, nafnbótina besti ungi leikmaður tímabilsins.

Chivu þjálfari tímabilsins og Dimarco besti leikmaðurinn
TENGT EFNI

Chivu þjálfari tímabilsins og Dimarco besti leikmaðurinn

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.