Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fös 22. maí 2026 17:00
Kári Snorrason
Chivu þjálfari tímabilsins og Dimarco besti leikmaðurinn
Chivu sáttur.
Chivu sáttur.
Mynd: EPA
Ítölsku meistararnir í Inter halda áfram að sópa að sér verðlaunum í Serie A. Rúmeninn Christian Chivu var valinn þjálfari tímabilsins og Federico Dimarco leikmaður tímabilsins.

Inter tryggði sér titilinn fyrir nokkrum vikum en liðið er með þrettán stiga forskot á toppi deildarinnar nú þegar ein umferð er eftir. Þá vann Inter jafnframt Coppa Italia, bikarkeppnina á Ítalíu.

Dimarco hefur skorað sjö mörk og lagt upp sautján í deildinni. Liðið mætir Bologna á morgun í lokaumferð deildarinnar.

Chivu er kallaður Philadelphia stjóri tímabilsins, en smurosturinn þekkti er einn af bakhjörlum deildarinnar.



Slapp
banner