Fotbolti.net
23.06.17 - 20:47
Dagur Lárusson

Jóhann Unnar: Þessi leikur spilaðist betur heldur en fyrri leikurinn

Auglýsing
Jóhann Unnar: Þessi leikur spilaðist betur heldur en fyrri leikurinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>„Þessi leikur spilaðist betur heldur en fyrri leikurinn,\"</i> sagði Jóhann Unnar eftir 1-0 ósigur síns liðs gegn ÍBV í Borgunarbikarnum í kvöld.
Þessi lið mættust einnig í deildinni fyrir nokkrum dögum og það líka í eyjum en þá fór leikurinn 3-0 fyrir Eyjastúlkur.

„Við vorum að spila heilt yfir mjög vel og við héldum okkur í stöðum. Við fengum kannski ekki svakalega mörg færi en það voru tvö í seinni hálfleiknum sem að voru ákjósanleg og seinna færið var að mínum mati dauðafæri.\"

Aðspurður út í leikinn sagði Jóhann að leikurinn hafi verið jafn og það hafi síður verið Haukarnir sem reyndu að brjóta ísinn.

„Mér fannst leikurinn vera jafn og í raun jafn mikið við að reyna að brjóta ísinn eins og ÍBV að reyna að brjóta ísinn.\"

Jóhann sagði einnig að það kæmi í ljós hvort að liðið myndi styrkja sig í komandi félagskiptaglugga.

„Það kemur bara í ljós, við erum ekkert stressaðir yfir því.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.