Vigfús: Eitt stig gefur okkur ekkert rosalega mikið

Vigfús Arnar Jósefsson, þjálfari Leiknir R.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Vigfús Arnar Jósefsson, þjálfari Leiknir R.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Eitt stig gefur okkur ekkert rosalega mikið. Okkar langaði rosalega mikið í þrjú stigin,'' segir Vigfús Arnar Jósefsson, þjálfari Leiknir, eftir gegn Afturelding í 8. umferð Lengjudeildarinnar.
„Fáum okkur aftur tvö mörk eftir eða fleiri í leik, ég er fúll með það. Við erum búin að leggja mikla áherslu á að verja markið okkar betur og það er klárt að það er stór verkefnið okkar í næstu leikjum.''
„Afturelding var kannski meira með boltann á milli vítateigin og fengum fleiri föst leik atriði. En við fengum alveg mjög góð færi líka til að skora. Þetta var svolítið lokaður leikur, það var ekki mikið að duðafærum,''
Afturelding komst 1-2 yfir á 69. mínútu, en Leiknir náði að jafna muninn aðeins eina mínútu seinna.
„Hrós á strákana að stíga strax upp setja á þá um leið. Það sýnir keppnismannin í okkur. Það er mjög auðvelt að bogna og brotna þar,''
Daníel Finns skoraði tvö mörk og vann mjög vel í þessum leik.
„Hann er frábær leikmaður, miki gæði og hann hjálpaði okkur ótrulega mikið, bæði leggur upp og skorar. Hann er með frábæran vinstri fót og gott auga fyrir sendingum,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.





