Alli Jói: Vonandi upphafið af einhverju meiru - Með nýjan aðstoðarmann

Marki fagnað í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Alli Jói kátur með sigurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karen Hulda í leiknum í gær.

Sveinn Leó, fyrrum aðstoðarþjálfari Þórs, er mættur í teymið.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Þór/KA vann í gær sinn fyrsta leik í Bestu deildinni þegar Þróttur kom í heimsókn á VÍS völlinn á Akureyri. Leikurinn var liður í 9. umferð og var Þór/KA með þrjú stig fyrir leikinn.
Sigurinn færir liðið upp um eitt sæti í töflunni, upp fyrir Fram sem nú situr á botninum.
Fótbolti.net ræddi við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, í dag.

Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 0 Þróttur R.
„Fyrst og fremst erum við ánægð með framlagið og heildar frammistöðu liðsins. Stelpurnar mættu með alvöru hugarfar og orku til leiks sem skóp sigurinn. Orkan og hugarfarið vó mest í því að landa sigrinum," segir Alli Jói.
Hvað breyttist milli leikja og varð til þess að þessi sigur vannst?
„Fyrir Valsleikinn (sem fór 0-0) þá lögðum við meiri áherslu á að verja markið okkar og vinna út frá því. Þar héldum við hreinu en vorum ekki nægilega hættulegar fram á við. Í leiknum í gær þá náðum við heilsteyptari frammistöðu á báðum endum vallarins. Þetta er vonandi bara upphafið af einhverju meiru hjá okkur."
Í hjarta varnarinnar er efnilegur leikmaður, Karen Hulda Hrafnsdóttir (2009) að spila með fyrirliðanum Örnu Sif Ásgrímsdóttur. Hvernig er Karen Hulda að koma inn í liðið?
„Karen er eins og þú segir efnilegur leikmaður sem er að koma inn í þetta hjá okkur og gert það mjög vel. Hún er hávaxin, öflug í loftinu, les leikinn vel og örugg á boltanum. Það hjálpar henni svo að hafa Örnu Sif hliðin á sér í vörninni að stjórna henni."
Selli orðinn hluti af teyminu
Ég sé að Sveinn Leó Bogason er kominn á bekkinn, hvernig kom það til og hvað gefur það þér, öðrum í teyminu og hópnum að hann sé orðinn hluti af þjálfarateyminu?
„Við vorum búnir að hlera Sella aðeins í vetur en í pásunni fórum við í það af alvöru að reyna að sannfæra hann að koma inn í þetta með okkur og við erum mjög ánægð að hafa náð honum með.
Hann kemur fyrst og fremst með gríðarlega orku og það hefur hjálpað okkur inn á æfingasvæðinu og einnig í leiknum í gær."
Sérstakt mót í ár
Hvað tekur við núna, takið þið eitthvað frí í U19 pásunni?
„Mótið er auðvitað mjög sérstakt, spilað þétt og margar pásur þannig það er krefjandi að finna takt eins og á hefðbundnu tímabili."
„Við erum að reyna að finna einhverja blöndu. Við æfum en gefum aðeins slaka líka. Það er mikilvægt að þær sem eru aðeins tæpar nái að nota þessa pásu og nái sér almennilega milli leikja.
En svo verðum við bara að vera klárar í að halda áfram og byggja ofan á það sem gott hefur verið í gangi að undanförnu þegar þetta fer af stað aftur," segir Alli Jói.
Næsti leikur Þórs/KA verður gegn Grindavík/Njarðvík fimmtudaginn 9. júlí.
Hvað breyttist milli leikja og varð til þess að þessi sigur vannst?
„Fyrir Valsleikinn (sem fór 0-0) þá lögðum við meiri áherslu á að verja markið okkar og vinna út frá því. Þar héldum við hreinu en vorum ekki nægilega hættulegar fram á við. Í leiknum í gær þá náðum við heilsteyptari frammistöðu á báðum endum vallarins. Þetta er vonandi bara upphafið af einhverju meiru hjá okkur."
Í hjarta varnarinnar er efnilegur leikmaður, Karen Hulda Hrafnsdóttir (2009) að spila með fyrirliðanum Örnu Sif Ásgrímsdóttur. Hvernig er Karen Hulda að koma inn í liðið?
„Karen er eins og þú segir efnilegur leikmaður sem er að koma inn í þetta hjá okkur og gert það mjög vel. Hún er hávaxin, öflug í loftinu, les leikinn vel og örugg á boltanum. Það hjálpar henni svo að hafa Örnu Sif hliðin á sér í vörninni að stjórna henni."
Selli orðinn hluti af teyminu
Ég sé að Sveinn Leó Bogason er kominn á bekkinn, hvernig kom það til og hvað gefur það þér, öðrum í teyminu og hópnum að hann sé orðinn hluti af þjálfarateyminu?
„Við vorum búnir að hlera Sella aðeins í vetur en í pásunni fórum við í það af alvöru að reyna að sannfæra hann að koma inn í þetta með okkur og við erum mjög ánægð að hafa náð honum með.
Hann kemur fyrst og fremst með gríðarlega orku og það hefur hjálpað okkur inn á æfingasvæðinu og einnig í leiknum í gær."
Sérstakt mót í ár
Hvað tekur við núna, takið þið eitthvað frí í U19 pásunni?
„Mótið er auðvitað mjög sérstakt, spilað þétt og margar pásur þannig það er krefjandi að finna takt eins og á hefðbundnu tímabili."
„Við erum að reyna að finna einhverja blöndu. Við æfum en gefum aðeins slaka líka. Það er mikilvægt að þær sem eru aðeins tæpar nái að nota þessa pásu og nái sér almennilega milli leikja.
En svo verðum við bara að vera klárar í að halda áfram og byggja ofan á það sem gott hefur verið í gangi að undanförnu þegar þetta fer af stað aftur," segir Alli Jói.
Næsti leikur Þórs/KA verður gegn Grindavík/Njarðvík fimmtudaginn 9. júlí.

Alli Jói kátur með sigurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karen Hulda í leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sveinn Leó, fyrrum aðstoðarþjálfari Þórs, er mættur í teymið.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 9 | +14 | 21 |
| 2 | FH | 8 | +12 | 19 |
| 3 | Stjarnan | 9 | +8 | 17 |
| 4 | ÍBV | 9 | -3 | 14 |
| 5 | Þróttur R. | 8 | +4 | 13 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 8 | -3 | 11 |
| 7 | Víkingur R. | 8 | -6 | 9 |
| 8 | Valur | 8 | -3 | 8 |
| 9 | Fram | 9 | -15 | 4 |
| 10 | Þór/KA | 8 | -8 | 3 |