Fotbolti.net
23.06.26 - 16:05
Kári Snorrason

Byrjunarlið Portúgals og Úsbekistan: Ronaldo leiðir línuna

Portúgal gerði 1-1 jafntefli við Kongó í fyrstu umferð.

Portúgal gerði 1-1 jafntefli við Kongó í fyrstu umferð.

Canon

Mynd: EPA

Flautað verður til leiks í leik Portúgals og Úsbekistan klukkan 17:00. Portúgal vill svara fyrir óvænt jafntefli gegn Kongó í fyrstu umferð en Úsbekar eru í leit eftir sínum fyrstu stigum á heimsmeistaramótinu.

Roberto Martinez, þjálfari Portúgal, gerir tvær breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Kongó.
Er Ronaldo dragbítur? - Martínez segir gagnrýnina ósanngjarna
TENGT EFNI

Er Ronaldo dragbítur? - Martínez segir gagnrýnina ósanngjarna

Cristiano Ronaldo er á sínum stað með fyrirliðabandið en þeir Ruben Dias og Joao Felix koma báðir inn í liðið á kostnað Bernardo Silva og Tomas Araujo.

Fabio Cannavaro, þjálfari Úsbeka, stillir upp í fimm manna varnarlínu þar sem leikmaður Manchester City, Abdukodir Khusanov, fer fremstur í flokki.

Portúgal:
Portúgal: Costa; Cancelo, Dias, Veiga, Mendes, Vitinha, J. Neves, Fernandes, Neto, Ronaldo, Félix

Úsbekistan: Nematov; Khusanov, Ashurmatov, Abdullaev, Karimov, Khamrobekov, Shukurov, Nasrullaev, Fayzullaev, Ganiev, Shomurodov
Úsbekar eru á sínu fyrsta heimsmeistaramóti.

Úsbekar eru á sínu fyrsta heimsmeistaramóti.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.