Er Ronaldo dragbítur? - Martínez segir gagnrýnina ósanngjarna

Cristiano Ronaldo.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Skoðanakönnun sem var á forsíðu Fótbolta.net.

Mynd: Fótbolti.net

Cristiano Ronaldo.

Mynd: EPA
„Það er eins og það sé myllusteinn um hálsinn á honum. Það er í raun ótrúlegt að Portúgalirnir séu manni færri og búnir að draga sig inn í 8-liða úrslitin en þetta grín getur ekki gengið lengur af því að þetta grín er að snúast upp í algeran harmleik,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson sem sérfræðingur RÚV á EM 2024.
Þar var hann að tala um að Cristiano Ronaldo væri algjör farþegi í portúgalska landsliðinu og ætti ekki að vera í liðinu.
Nú tveimur árum seinna er þessi umræða sprottin upp aftur og það ansi hávær eftir 1-1 jafntefli portúgalska liðsins gegn Kongó í fyrsta leik mótsins.

TENGT EFNI
Óskar Hrafn um Ronaldo: Gjörsamlega 'pathetic' og þetta grín er að snúast upp í algjöran harmleik
Mikið er rætt um hvort hinn 41 ára gamli Ronaldo sé maðurinn sem eigi að leiða sóknarlínu Portúgals.
„Gagnrýnin hefur verið óréttmæt og ósanngjörn. Við erum að spila á HM og það er ýmislegt sagt en við erum með fulla einbeitingu. Liðið er samheldnara en áður," segir Roberto Martínez, þjálfari portúgalska liðsins.
Sparkspekingurinn Luis Aguilar segir að Ronaldo sé ekki lengur besti leikmaður portúgalska liðsins. - „Það er eins og hann sé stærri en heildin og það sé mikilvægara að vinna fyrir hann en fyrir liðið," segir Aguilar.
Er Ronaldo dragbítur í portúgalska landsliðinu? Þessi spurning var lögð fyrir lesendur. Samkvæmt niðurstöðu í könnun á forsíðu Fótbolta.net telja 77% að svo sé en 23% svöruðu neitandi.
Kastljósið mun beinast að Ronaldo í dag þegar Portúgal og Úsbekistan mætast klukkan 17:00.