Fotbolti.net
23.06.26 - 16:34
Kári Snorrason

Deschamps hrifinn af Norðmönnum - „Eitt af bestu landsliðum Evrópu“

Deschamps og Mbappe fara yfir málin.

Deschamps og Mbappe fara yfir málin.

Canon

Mynd: EPA

Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, hefur hrifist af Noregi á heimsmeistaramótinu. Frakkar og Noregur mætast í lokaumferð riðlakeppninnar á föstudag. Bæði lið eru með fullt hús stiga.
„Norska liðið er virkilega gott. Það sýndu þeir í undankeppninni og þeir halda áfram að sanna það með hæfileika sínum til að skora mörk og vera skilvirkir með leikmenn sem spila með nokkrum af bestu félagsliðunum.

Þetta er eitt af bestu landsliðum Evrópu og við vitum hvað bíður okkar,“
sagði sá franski á blaðamannafundi eftir sigur Frakka á Írak í gærkvöldi.

Erling Haaland, framherji Noregs, hefur byrjað mótið frábærlega og hefur hann skorað fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjunum.

Hann var þó ekki bjartsýnn fyrir leikinn gegn Frökkum og sagði hann að Frakkland myndi vinna Noreg og líklegast mótið. Það kæmi þó ekki að sök því Noregur hefur tryggt sig áfram í 32-liða úrslit.

Haaland: Frakkar munu vinna okkur og mótið
TENGT EFNI

Haaland: Frakkar munu vinna okkur og mótið

Skoraði tvö mörk í nótt.

Skoraði tvö mörk í nótt.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.