Maður dagsins á HM - Þegar Messi hætti fyrir áratug

Messi í landsleiknum fræga gegn Íslandi 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Árið 2016 ákvað Lionel Messi að leggja landsliðsskóna á hilluna. Eftir tap gegn Síle í Copa America gat hann ekki meðtekið meiri sársauka. Messi klúðraði víti í vítakeppni úrslitaleiksins og Argentína tapaði fjórða úrslitaleiknum á stórmóti á níu árum.
„Hjá mér er landsliðið að baki. Ég er búinn með allt. Það særir að vera ekki meistari," sagði Messi á þeim tíma.

TENGT EFNI
HM: Messi skrifaði söguna og Argentína er komin í 32-liða úrslit
Tíu árum síðar, þegar hann er að verða 39 ára, er hann nýorðinn markahæsti leikmaður í sögu HM og spilar fyrir ríkjandi heimsmeistara Argentínu.
Ákvörðun hans að taka landsliðsskóna fram aftur og hætta við að hætta hefur skapað gulltímabil hjá honum og argentínsku þjóðinni. Liðið hefur unnið síðustu tvær Copa America keppnir og stóra stundin kom 2022 þegar Messi leiddi Argentínu til sigurs á HM, þar sem hann skoraði sjö mörk á mótinu og þar af tvö í úrslitaleiknum.
Í gær varð Messi svo markahæstur í sögu HM, skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri gegn Austurríki og er með tveimur mörkum meira en Miroslav Klose. Messi er maður dagsins á HM og ekki í fyrsta sinn.