23.08.26 - 23:48
Brynjar Ingi Erluson
Alvarez skipað að fara beint inn í klefa - „Þetta var ákvörðun félagsins“

Alvarez í leiknum gegn Villarreal

Mynd: EPA

Alvarez í leiknum gegn Villarreal

Mynd: EPA
Spænska félagið Atlético Madríd skipaði argentínska sóknarmanninum Julian Alvarez að fara beint inn í klefa eftir 2-2 jafnteflið gegn Villarreal í La Liga í dag.
Alvarez var í leikmannahópi Atlético í fyrsta sinn á tímabilinu og kom inn á sem varamaður þegar hálftími var eftir.
Stuðningsmenn félagsins bauluðu hátt á Argentínumanninn sem hefur lýst yfir vilja sínum til að fara og ganga í raðir Barcelona.
Atlético hefur hins vegar tekið skýrt fram að það komi ekki til greina að selja hann til Börsunga. Félagið er ósátt við þá herferð sem Barcelona er sagt hafa staðið fyrir til að koma Alvarez úr jafnvægi og lokka hann til Katalóníu.
Eftir leikinn sást Alvarez hraða sér beint inn í klefa. Diego Simeone, þjálfari Atlético, segir að það hafi verið ákvörðun félagsins að halda honum frá stuðningsmönnunum.
„Mér var sagt að félagið hefði ákveðið að hann ætti ekki að fara nálægt stúkunni og stuðningsmönnunum. Því var ákveðið að halda honum til hliðar þegar restin af liðinu fór að stúkunni og senda hann þess í stað beint inn í klefa,“ sagði Simeone.