Fotbolti.net
23.08.26 - 21:08
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Sanngjarn sigur Víkinga sem náðu aftur átta stiga forskoti

Valdimar Þór fagnar marki sínu gegn Val

Valdimar Þór fagnar marki sínu gegn Val

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. 2 - 0 Valur
1-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('49 )
2-0 Helgi Guðjónsson ('69 )
Rautt spjald: Aron Baldvin Þórðarson, Víkingur R. ('64) Lestu um leikinn
Íslandsmeistarar Víkings færast nær því með hverjum leiknum að verja titilinn, en liðið endurheimti átta stiga forystu sína á toppnum með 2-0 sigri á Val í 20. umferð Bestu deildarinnar í Víkinni í kvöld.

KR-ingar unnu KA, 5-3, á Akureyri fyrr í dag og minnkuðu forskot Víkinga tímabundið. Íslandsmeistararnir virðast hins vegar staðráðnir í að hleypa ekki mikilli spennu í titilbaráttuna.

Víkingar voru sterkari í fyrri hálfleiknum og sköpuðu sér nokkur góð færi, þótt Valsmenn kæmust einnig í álitlegar stöður. Hvorugu liðinu tókst þó að skora fyrir hálfleik.

Heimamenn voru ekki lengi að brjóta ísinn í síðari hálfleiknum. Karl Friðleifur Gunnarsson keyrði upp völlinn og kom boltanum á Hrannar Snæ Magnússon sem fann Valdimar Þór Ingimundarson aleinan við vítateigsbogann. Valdimar tók við boltanum og afgreiddi hann snyrtilega í vinstra hornið.

Víkingar héldu áfram að sækja. Sveinn Gísli Þorkelsson átti hörkuskot í slána og Stígur Diljan Þórðarson komst í dauðafæri, en heimamenn fóru áfram illa með færin.

Aron Baldvin Þórðarson úr þjálfarateymi Víkings fékk rautt spjald á 64. mínútu eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu við hliðarlínuna en aðeins fimm mínútum síðar gerði Helgi Guðjónsson svo út um leikinn.

Stígur gerði vel vinstra megin og sendi góða fyrirgjöf á fjærstöngina. Þar skallaði Hrannar boltann aftur inn á miðjan teiginn þar sem Helgi var furðulega frír og skoraði af öryggi.

Sannfærandi frammistaða hjá Víkingum þótt liðið hefði hæglega getað skorað fleiri mörk.

Víkingur er á toppnum með 51 stig og átta stiga forskot á KR þegar tvær umferðir eru eftir fyrir tvískiptingu deildarinnar. Valur er í 8. sæti með 23 stig en á enn möguleika á sæti í efri hlutanum.

Víkingar mæta næst Borac í síðari leik liðanna í umspili Sambandsdeildarinnar. Þar á eftir bíður toppslagur gegn KR þar sem Víkingar geta svo gott sem tryggt Íslandsmeistaratitilinn.

Valur mætir á meðan ÍA í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í efri hlutann.
Besta deildin: Sanngjarn sigur Víkinga sem náðu aftur átta stiga forskoti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR20+2743
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA20-1416
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.