23.08.26 - 22:20
Brynjar Ingi Erluson
Bjarki áfram á skotskónum hjá Dortmund

Bjarki er kominn með sjö mörk fyrir U19 ára lið Dortmund

Mynd: Dortmund

Hinn 16 ára gamli Bjarki Hrafn Garðarsson var enn á ný á skotskónum með U19 ára liði Borussia Dortmund sem vann VfL Osnabrück, 2-0, í deildinni í dag.
Þessi stóri og stæðilegi framherji gekk í raðir Dortmund frá Stjörnunni í síðasta mánuði og hefur farið á kostum með U19 ára liði félagsins.
Hann skoraði þrennu í fyrstu tveimur leikjum sínum og bætti í dag við sínu sjöunda marki í aðeins fjórða leiknum.
Bjarki skoraði annað mark Dortmund þegar um hálftími var eftir af leiknum.
Dortmund er á toppi H-riðils með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Næsti mótherji liðsins er Duisburg en sá leikur fer fram eftir þrjá daga.
Daniel Ingi Jóhannesson, sem er á láni hjá Kolding frá Nordsjælland, kom inn af bekknum þegar stundarfjórðungur var eftir er liðið gerði 2-2 jafntefli við Köge í B-deildinni í Danmörku.
Þetta var frumraun hans með liðinu sem er í 10. sæti með 3 stig eftir fimm leiki.