Fotbolti.net
23.08.26 - 14:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Newcastle og Liverpool: Bæði lið með nýjan stjóra

Jeremy Jacquet byrjar hjá Liverpool.

Jeremy Jacquet byrjar hjá Liverpool.

Canon

Mynd: Liverpool

Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, sem er heldur betur áhugaverður.

Newcastle tekur þá á móti Liverpool. Bæði lið hafa gengið í gegnum talsverðar breytingar í sumar og mæta bæði til leiks með nýjan stjóra, Matthias Jaissle er tekinn við Newcastle og Andoni Iraola er tekinn við Liverpool.
Amar Dedic byrjar í hægri bakverði hjá Newcastle aðeins fimm dögum eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Benfica. Hann er einn af þremur leikmönnum sem leika sinn fyrsta leik fyrir félagið. Markvörðurinn Lukas Hornicek og miðjumaðurinn Sean Steur fá einnig tækifæri í byrjunarliðinu í fyrsta keppnisleik félagsins eftir brottför Anthony Gordon, Bruno Guimaraes og Sandro Tonali.

Aladji Bamba, Ewen Jaouen og Bazoumana Toure byrja á bekknum. Yoane Wissa virðist fá frjálsara hlutverk fyrir aftan Will Osula, sem leiðir sóknina.

Alexander Isak snýr aftur á St James' Park þar sem hann byrjar fremstur í liði Liverpool. Hjá Liverpool fær Jeremy Jacquet frumraun sína í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa staðið sig vel í leik gegn Como á undirbúningstímabilinu. Rio Ngumoha byrjar hægra megin í sókninni þegar Liverpool hefur nýtt tímabil án Mohamed Salah.

Byrjunarlið Newcastle: Hornicek, Dedic, Thiaw, Botman, Hall, Miley, Steur, Barnes, Elanga, Wissa, Osula.
(Varamenn: Jaouen, Schar, Bamba, Toure, Murphy, Woltemade, Willock, Ramsey, Shahar).

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Frimpong, Jacquet, Van Dijk, Kerkez, Gravenberch, Szoboszlai, Ngumoha, Wirtz, Gakpo, Isak.
(Varamenn: Mamardashvili, Endo, Mac Allister, Tsimikas, Munoz, Araujo, Nyoni, McConnell, Koumas).
Sean Steur byrjar hjá Newcastle.

Sean Steur byrjar hjá Newcastle.

Canon

Mynd: Newcastle

Alexander Isak snýr aftur á St James' Park.

Alexander Isak snýr aftur á St James' Park.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.